3.12.2023 Jólafrí

Ég er núna að fara í frí af sjónum til að fara í próf í Vélskóla Íslands, auk þess sem ágætt er að slappa af í nokkra daga.
Ég var að skoða veðrið sem var í Grundarfirði 1.des. s.l. en þá fór vindur í 43m/s í hviðum en 10 mínútna meðaltal var 35m/s.  Svona getur nú sunnan áttin verið erfið.  Ég tók hins vegar eftir því að í morgun var rigning og rok, en meðal vindhraði (10 mínútur) fór ekki yfir 14m/s en í vindhviðum náðist allt að 32m/s.

Ég kíkti í kaffi til Palla, vinar míns og fyrrverandi vinnufélaga, og var hann bara mjög ánægður með lífið.  Konan hans var byrjuð að baka fyrir jólin og naut ég góðs af því.

29.08.2003

Í dag náðum við þeim ágæta árangri að fá yfir 300 fiska á einn rekka, en annars var þetta ágætis dagur. Við erum með farþega (iðnnjósnara) þessa veiðiferðina. Hann er stýrimaður á Örvari frá Rifi og er maðurinn kallaður Hemmi og er hann frá Ólafsvík. Þennan dreng hitti ég fyrst á Benidorm í ágúst 1994 og er hann fínn strákur, jafnvel þótt hann sé Ólsari. Þeir á Örvari eru einnig búnir að senda njósnara um borð í Faxaborgina, en núna er búið að setja beitningarvél um borð í Örvar.

Bjarni yfirvélstjóri er framar á myndinni og njósnarinn er fyrir aftan hann. (ekki í fókus eins og njósnara sæmir)