Landvistarleyfi í FarFarAway

Er víst búinn að fá staðfestingu á landvistarleyfi í „Far far away“

Fékk senda smá vísu í jólakorti.

Kenndur Stormi kauði jú
kokkar út á sjónum
Logninu ég lýsi nú
Ljúfum víst og góðum

Margt getur, mikið og kann
mörgum kostum búinn
Vafrar líka vefinn um hann
Viti menn, þar var þá frúin

Mögulegt landvistarleyfi í FarFarAway

Var nú í sambandi við „far far away“ og fékk þau svör að ég fengi upplýsingar um landvistarleyfið í fyrramálið.  Hvernig í ósköpunum á Íslendingur að geta beðið eftir eitthverju þar til daginn eftir, hvað þá í marga daga.  Það er nú ekki eins og maður sé eitthvað þolinnmóður.  Svo er nú eftir að gera helling fyrir jólinn, en fegnastur er ég þó að vera ekki heima um jólin og verður því ekkert jólaskraut fyrir utan litla sæta jólatrésins okkar Franks.

Svo finnst mér alltaf gaman að skoða hvernig heimsóknarvenjur fólks á vefinn minn eru, en Tommi virðist alltaf kíkja í heimsókn á virkum dögum milli kl. 10:30-12:15 úr vinnuni, Eyrún virðist einnig alltaf kíkja í vinnunni en tímasetningin getur verið allur dagurinn. Svo eftir að Jónas skipstjóri endurnýjaði tölvuna sína og fékk sér vdsl.is tenginu þá virðist ég ekki getað fylgst með honum lengur. Var reyndar ofur einfalt áður þar sem hann var með Windows ME og IE 5.5 vafra og ISDN aðgang hjá símanum. Svo kíkir víst Hilmar hennar Steinunnar hérna stundum en það gætu líklegast verið aðeins tvær manneskjur í Danmörku að skoða síðuna mína reglulega. Svo hún Louise kíkir stundum frá  tengingunni xxxxxx.umea.se og svo Emilia með eitthvað .ca  Svo eru stundum eitthverjar dularfullar heimsóknir frá tölvum sem ég næ engan veginn að skilja hver er að nota. T.d. er ég búinn að fá a.m.k. tvær heimsóknir frá xxx.althingi.is s.l. viku og einnig fengið nokkrar heimsóknir frá Norræna fjárfestingarbankanum xxx.nib.int.  Það er samt alltaf gaman að vita að eitthverjir merkilegir menn séu að skoða síðuna mína og það reglulega.  Hvað skyldu þeir á alþingi vera að lesa? Ætli verði sett lög sem banna mér að nota internetið? Eða verður mér boðið sæti á framboðslista fyrir næstu kostningar? Skyldi Norrænni fjárfestingarbankinn vilja fjárfesta í lognid.is? Skyldu þeir vilja lána mér peninga til að kaupa „Far far away“?  Þetta vekur upp margar spurningar hjá mér og væri auðvitað gaman að þetta fólk skrifaði í gestabókina mína, þó ekki væri nema bara nafn og hvernig þeir fundu síðuna mína.

Jólafrí

Þá er maður víst kominn í jólafrí!!!  Og svo fæ ég líklegast fréttir í dag um hvort ég fái landvistarleyfi í „Far far away“ en maður vonar bara það besta.

Svo verður maður nú að segja ljóta sögu af eitthverjum vinnufélaga mínum, en eitthver gerðist svo óheiðarlegur að stela frá mér fisk sem ég var búinn að hafa fyrir að flaka fyrir mína nánustu og er nú spurning hvort að ég kæri ekki verknaðinn til lögreglunar (Óla Storms anda átti hann að fá hluta af fisknum) eða ………?????   Er reyndar með ágæti hugmynd að refsingu, en hún er á þann veg að þegar ég mæti til vinnu á næsta ári verður hafður fiskur í hvert mál þangað til eitthver eða eitthverir taka sig til og flaka fyrir mig a.m.k. sama magn og var stolið af mér.  Þannig að þá verður bara öllum refsað fyrir verknaðinn og verði þeim að góðu. 

DVD RewindeR

Þetta er græjan sem allir verða að eignast og er maður loksins kominn með einkaumboð á Íslandi fyrir þessa græju.  Þessi græja er um 40-100 sinnum fljótari að spóla til baka DVD diskunum en spilarinn ykkar og á þessi græja að geta sparað fólki mikinn tíma og peninga.  Hver kannast ekki við að þurfa greiða aukagjald fyrir leiguna á DVD diskum vegna þess að ekki var nægur tími til að spóla til baka.  Svo getur þessi græja líka spólað til baka öllum tegundum af geisladiskum.  Þessi græja fæst nú á Íslandi og get ég boðið hana á alveg einstöku verði vegna lágs gengis dollarans gagnvar Íslensku krónunni.  Kostar aðeins 2.490kr,-   Þeir sem vilja eignast svona græju bara hringja í síma 84 84 000 eða senda póst á lognid@lognid.is og þeir sem vilja gerast endursöluaðilar hafi samband í síma 898-6102 eða lognid@lognid.is

Leggjaekki.is (fúli kallinn)

Hvar á ég að leggja bílnum mínum?

Ég verð nú að segja að þetta fallega og besta bæjarfélag á Íslandi sem ég bý í og við Grundfirðingar erum alltaf að segja öllum að hér sé best að vera, stendur engan veginn undir slíkum fullyrðingum þessa daganna. Þegar að hérna snjóar smá tekur það marga daga að gera göturnar aksturshæfar og enn fleiri daga að gera íbúunum kleift að leggja ökutækjum sínum þannig að ekki skapist hætta af þeim. Á þriðjudaginn í síðustu viku kom ég heim úr Reykjavík og þá var byrjað að snjóa hérna. Það var líklegast 1 fet af jafnföllnum snjó hérna á miðvikudagsmorguninn og voru þá á ferðinni hin ýmsu tæki við að ryðja snjónum af götunum og sá ég þá eitt tæki sem notað var við að moka snjónum af gangstéttunum og hugsaði ég að það væri nú framför að gangandi vegfarendur væru ekki á miðjum götunum eins og oftast þegar snjóar. Þá varð mér nú hugsað að bæjarfélagið væri að standa sig vel í snjómokstri. Reyndar fannst mér þeir hafa mokað hinar ýmsu götur hálf skringilega og varla hægt að mæta bílum á sumum þeirra. Ég hugsaði með mér að best væri að geyma bílinn minn eitthvers staðar annars staðar en við húsið mitt þegar ég færi á sjóinn (s.l. fimmtudag) til að auðvelda snjómoksturstækjum að moka Borgarbrautina framan við húsið mitt. Þegar ég kem svo heim s.l. þriðjudagsmorgun og ek á bílnum mínum upp Borgarbrautina að heimili mínu sé ég að ekki hefur verið neitt gert í snjómokstri í tæplega 5 daga og gat ég með engu móti lagt bílnum mínum við húsið mitt g varð ég að leggja í næstu götu og var ég nú frekar fúll yfir þessu og var að spá í að hringja á bæjarskrifstofuna og kvarta. Sama dag sé ég á vef Grundarfjarðarbæjar tilmæli til fólks að leggja bílum sínum þannig að auðvelt sé að moka göturnar og hugsaði ég að þar með ætluðu þeir að gera hlutina almennilega og engin ástæða væri að hringja og vera með svívirðingar við starfsfólk bæjarins. En því miður er komið miðvikudagskvöld og lítið verið gert til að gera Borgarbrautina almennilega og ef eitthvað er þá er bara ennþá erfiðra að leggja bílnum við húsið mitt svo vel eigi að vera. Ég varð bara svo fúll yfir þessu að ég lagði bílnum mínum á miðri Borgarbrautinni, alveg við ruðninginn frá snjómoksturstækjunum og vona bara að hann verði sem mest fyrir umferðinni í fyrramálið þegar íbúar bæjarins aka börnunum í skólann. Í þau 18 ár sem ég hef búið í þessu húsi hefur verið hefð fyrir því að bílum sé lagt við gangstéttina allt árið en vegna snjóruðninga er ekki hægt að leggja nær gangstéttinni en 1,5 metra og ef þetta verður ekki lagað á morgun ætla ég að skilja bílinn eftir þarna á miðri götunni meðan ég er á sjó.

Ég á afmæli í dag!

Ég er 30 ára í dag!

Var nú að spá í að gera mér glaðan dag og fara á Krákuna og fá mér Lambafillet og kannski rauðvín með en þar er bara allt slökkt og ekki svarað í síma. Kannski eru Finni og Halla bara í haustfríi á Spáni?  Kannski maður panti sér þá bara pizzu á Kaffi 59.  En alla vega þá fer ég í kaffi og vöflur til Bjarka & Brynju í kvöld og eiga þau þakkir skyldar fyrir slíkt höfðinglegt heimboð á afmælisdaginn minn.