Í dag var ákveðið að fara snemma á sjóinn (kl. 3) til að geta verið búnir að draga áður en veðrið mundi versna seinnipart dags, en stundum bara fara hlutirnir ekki eins og menn ætla. Þegar við vorum rétt að fara frá stórubryggjunni skall á hið versta veður og rétt sluppum við frá því að bakka á Sæþór EA sem lá einnig við stórubryggjuna, en í staðinn tók vindurinn völdin og lentum við á grjótgarðinum við enda stórubryggjunnar og skemmdum stýrið á bátnum sem varð svo til að drapst á aðalvélinni. Var ankeri strax látið síga þar sem bátinn rak stjórnlaust frá stórubryggjunni út á fjörð. Þar sem þarna er aðalega drullubotn náði ankerið ekki festu og rak okkur hratt í átt að þorskeldinu. Kibbi vaktmaður var snöggur að ræsa áhöfnina á Sæþóri EA sem svo voru snöggir að koma okkur til aðstoðar og draga Grundfirðing að bryggju. Ekki er vitað hve mikið tjónið á stýri, skrú eða skrokk eru. Þetta er ekki skemmtileg lífsreynsla en fyrir öllu er að allir komumst við í höfn heilir. Svo núna veit maður ekki hvað næsta skref er en það verður líklegast leitað eitthvera leiða til að ná netunum okkar úr sjó og laga það sem laga þarf. Líklegast þarf Grundfirðingur að fara í slipp og er ómögulegt að gera sér grein fyrir hvað það tekur langan tíma að gera við skipið en vonandi sem stystan tíma. Þetta er auðvitað skelfilegt að lenda í þessu yfir hábjargræðistímann og líklega verður launatap áhafnarinnar töluvert af þessum sökum.
7.2.2005
Komum í land í morgun kl. 06:00 úr síðasta línuróðrinum í bili. Núna erum við að skipta yfir á þorskanet, sem er mjög svo skemmtilegt veiðafæri, auk þess sem við verðum í dagróðrum. All flestir áhafnarmeðlimir eru mjög svo spenntir fyrir þessari breytingu og er mikil tilhlökkun í mannskapnum, fyrir utan einn en í honum er smá skrekkur (Shrek) yfir þessu öllu saman. Einn ónefndur var orðinn svo spenntur í síðasta túr að hugur hans var búinn að leggja netin og var hann næstum byrjaður að draga þau líka. Eins og í fyrra þá verðum við með einn Ólsara, hann Danna, og virðist vera skapast eitthver hefð fyrir að hafa eins slíkan á netunum. En annars er það bara hin besta tilbreyting að skipta um veiðafæri auk þess sem það gefur möguleika á meiri launum. Þ.e. auðvitað ef kallinn klúðrar þessu ekki, hver veit?
24.1.2005
Loksins tóks Microsoft að senda frá sér almennilegt forrit. „Microsoft´s AntiSpyware tool“ en þetta forrit á áð fjarlægja spæjaraforrit og önnur skaðleg forrit úr tölvum og er það svo öflugt að það fjarlægir einnig hið marggallaða forrit Internet Explorer. Ég mæli með að fólk setji upp „FireFox“, „Mozilla“ eða „Opera“ vafra á tölvunni sinni áður en þetta snilldar forrit er keyrt á tölvunni ykkar. Lesið nánar frétt af vef.
Flensa
Komum í land í gær en ég var voðalega slappur og gerði nánast ekki neitt. Búinn að vera með flensuskít síðustu daga og var síðasti túr mjög svo erfiður fyrir mig. Það er þó kannski smá kaldhæðni í örlögunum því nákvæmlega fyrir 10 árum var ég fárveikur um borð í Fanney SH-24, á línuveiðum með beitingarvél. Þá var matarlystin eitthvað ekki góð og gat ég ekki klárað hádegismatinn og hafði matsveinninn (Haraldur R. Magnússon), orð á því hvort ekki væri allt í lagi. Eftir svo smá vinnu út á dekki fór ég að fá verk í magann, var sljór, svitnaði mikið en var að deyja úr kulda. Þá var mér hent í koju, og hafður undir eftirliti uns við komum í land en þá var ég sendur á sjúkrahúsið á Akranesi. Núna var ég hins vegar listarlaus og slappur mest allan túrinn og stundum svitnaði ég mikið og stundum var mér ægilega kalt. Reyndar held ég að ég hafi slegið öll svitamet á sunnudagsmorguninn og er hætt við að allur vetrarforðinn sem ég var búinn að safna utan á mig í Moldavíu sé horfinn. Vegna þess hvernig örlögin hafa verið er best að vera ekki að storka þeim og því best að panta mér frí 12-17.janúar 2015. Vitanlega var ekki um sömu sjúkdómana að ræða því 1995 var það botnlanginn en 2005 flensa.
Svo er ég að vinna í að setja inn ferðasöguna og fara hlutar úr henni að koma inn fljótlega.
Heim frá FarFarAway
Kom heim til Grundarfjarðar kl. 01:40 í morgun og var þá afskaplega þreyttur. Stoppaði aðeins hjá mömmu í Reykjavík og hitti þar fyrir bræður mína Óla Björn og Frank, og bauð mamma okkur upp á fisk sem var ofboðslega vel þeginn eftir heimkomuna. Svo mun ég víst fara á sjóinn í dag kl. 17:00 og því er enginn tími núna til að setja inn myndir eða ferðasöguna. Er reyndar búinn að skrifa megnið af ferðasögunni í fartölvunni meðan ég var úti og ætla ég að setja a.m.k. hálfa söguna hérna næst þegar ég verð í landi. Vill reyndar segja að þetta var ofboðslega skemmtileg ferð og gaman að sjá hvað allt er öðuvísi þarna í FarFarAway „Moldova“. Vona bara að það verði gott fiskirí og ég verði kominn heim á mánudagsmorguninn.
Ég vill byrja á að óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs
(nema þeim sem stal fisknum)
En annar er ég núna staddur í Budapest í Ungverjalandi og sit bara á flugvellinum að nördast á netinu og smakka ungverskan bjór. Á sama tíma eru vinnufélagar mínir að taka beituna um borð og munu líklegast leggja í hann fljótlega. Ég þarf hins vegar að sitja hérna örlítið lengur og svo síðar mun ég fljúga með Saab 340 flugvél til Chisinau í Moldavíu, öðru nafni „Farfaraway“. Í morgun kom ég með Canadair Jet 200 flugvél sem er framleidd af sama fyrirtækinu og gerir Ski-doo (vélsleða), Sea-doo (sjóketti), Evenrude & Johnson (utanborðsmótora). Þetta var 48 manna þota og var flughraðinn eitthvað á milli 850km/klst til 960km/klst. Saab vélin sem ég mun fljúga með á eftir er hins vegar ekki nema 33 manna vél en maður hlítur að vera öruggur í Saab?.
Annars er ég reyndar langt á eftir upphaflegri áætlun því ég ætlaði að fljuga út 28.12 og koma til „farfaraway“ 29.12. En svona er þetta bara stundum. Í gær eyddi ég hins vegar deginum í kóngsins Kaupmannahöfn. Hafið þið hugsað út í þetta „kóngsins Kaupmannahöfn“? Og þeir eiga ekki einu sinni kóng! Bara Drottningarmann, drottningu og erfingja.
En agaleg snilld er þetta þráðlausa internet og allir þessir heitu reitir í heiminum sem hægt er að tengjast við.Átti nú reyndar ekkert sérstaklega von á að slíkt væri til staðar í Budapest, en er hins vegar nokkuð viss um að slíkt er ekki til staðar í „Farfaraway“ enda held ég að það sé líka farfaraway í tækni og tíma. Mikið agalega er maður þó að verða þreyttur og svangur á að sitja bara á rassgatinu og nördast í tölvunni. Svo bara spyr ég, hverjir vilja fá póstkort?
En svo ef ég kemst ekki í tengingu til að uppfæra síðuna mína þá skal ég reyna að skrifa eitthvað í „segðu þitt álit“
kv. frá Budapest
