Í gær fór ég á sjóinn með Grettir og á morgun fer ég víst með þeim og verð líklegast með þeim fram á laugardag. Greinilegt að Hólmararnir geta ekki án mín verið. Vonandi breytist maður ekki í Hólmara af þessu öllu. Í dag gerði ég reyndar mjög lítið. Fór í kaffi til Dadda og svo eldaði ég mér kjúklinganagga fyllta með hvítlauksosti. Var þetta mjög gott en ég er alla jafna mjög latur við að elda heima hjá mér. Svo er reyndar á dagskránni að elda nautasteik fyrir Frank og Storminn í Stykkishólmi á laugardaginn.
26.2.2005
Í gær og í dag fór ég með Grettir SH-104 til netaveiða í Breiðafirði. Það er alltaf gaman að koma um borð í önnur skip og sjá hvernig menn vinna hlutina, önnur vinnubrögð, önnur andlit, önnur vinnuaðstað og fl. Grettir er stuttur og breiður á meðan Grundfirðingur er langur og mjór. Ég fer víst ekki aftur með þeim í bráð en Steini mætir aftur á mánudaginn, en hann eignaðist víst son í gær og óska ég honum bara til hamingju með enn einn erfingjann. En ef eitthver fer í frí þá mun Óskar hringja í mig.
Ég fékk víst þær fréttir í dag frá FarFarAway að ég komist ekki þangað fyrr en eftir 2-3 vikur og að mínum dómi er það allt of löng bið og mun það væntanlega stytta fyrirhugaða ferð eitthvað.
24.2.2005
Ég fer víst á sjóinn með Grettir SH-104 frá Stykkishólmi. Núna mun ég leysa kayaka Steina af, en hann leysti mig af á Grundfirðingi þegar ég var í FarFarAway. Steini fer í nokkra daga barneignarfrí, svona rétt á meðan konan er að eiga.
22.2.2005
Í gær mánudag, fór ég með Grettir SH 104 frá Stykkishólmi til netaveiða í Breiðafirði. Verkefni dagsins var að draga 6 trossur og leggja svo fjórar til viðbótar. Afli dagsins var nálægt 5 tonnum en hefði mátt vera meiri. Þetta er í fyrsta skiptið sem ég hef unnið um borð í skipi frá Stykkishólmi og líklegast annað skipið sem ég hef unnið á sem ekki er skráð í Grundarfirði. Ég fór kíkti svo í kaffi til Stormsins og höfðum við feðgarnir ýmislegt að spjalla um og var ég því seint heima í gærkvöldi. Í dag setti ég svo upp spjallborð á síðuna mína og vona að þið verðið öll dugleg að skrifa eitthvað á spjallborðið. Spjallborðið er þannig uppsett að fólk þarf að skrá sig inn til að geta skrifað eitthvað þar, en bannað er að vera með mikil leiðindi. Til að komast inn á spjallborðið þá er tengill vinstramegin á síðunni og einnig í tenglasafninu efst á síðunni.
18.2.2005
Í dag kom áhöfnin saman til fundar um stöðu mála varðandi Grundfirðing. Ljóst er að um tveggja mánaðar stopp er að ræða þar sem skipa þarf um stýrisbúnað, skrúfubúnað og gírinn verður yfirfarinn. Áhöfnin verður á kauptryggingu þann tíma sem við erum ekki að vinna hjá öðrum. Ljóst er að kauptrygging dugar fæstum til að framfleyta sér og borga heimilisreikninga á sama tíma og munu menn því væntanlega reyna koma sér í eitthver afleysingarstörf. Ég er nú búinn að fá einn netaróður með Grettir SH á mánudaginn og kannski eitthverja daga kringum næstu helgi. Annars ætla ég að fara sem farþegi með Garpnum í fyrramálið og mun myndavélin vera þar með í för. Hver veit nema maður skelli svo öllu upp í kæruleysi og fari bara til FarFarAway þar sem maður getur lifað eins og kóngur á kauptryggingunni.
15.2.2005
Þá er maður búinn að fá smá fréttir af gangi mála með Grundfirðing, en í morgun kom Sóley SH-124 í land og eftir löndun drógu þeir Grundfirðing inn í Stykkishólm þar sem hann bíður slipptöku. Áður en skipið var dregið inn í Hólm kafaði Sumarliði til að kanna skemmdir á skipinu og eftir hans lýsingum telja svartsýnustu menn að viðgerð gæti tekið allt að tvo mánuði. Það á að reyna taka skipið upp í slippinn á miðnætti en óvíst að það gangi sökum veðurs í hinum Stormasama Stykkishólmi. Samkvæmt þessum fréttum tel ég það víst að komið sé svar við spurningu sem ég varpaði fram þann 7.2.2004 „En annars er það bara hin besta tilbreyting að skipta um veiðafæri auk þess sem það gefur möguleika á meiri launum. Þ.e. auðvitað ef kallinn klúðrar þessu ekki, hver veit?“
En annars erum við að fara núna nokkrir úr áhöfninni inn í Ólafsvík til að taka á móti Sæfara ÁR (ex Fanney SH-24 & ex Grundfirðingur SH-24), sem dró upp nokkrar netatrossur fyrir okkur í dag, og munum við koma netunum, færu, drekum og baujum í kör á bryggjunni. Aðrir bátar sem drógu upp trossur fyrir okkur í dag munu vera Sjöfn EA, Saxhamar SH og Haukabeg SH-20 og eiga áhafnir þessara báta þakkir skyldar fyrir það. Einnig eiga Kibbi Rabba og áhöfnin á Sæþór EA þakkir skyldar fyrir snögg viðbrögð í morgun.
