Elín María stækkar og stækkar og er sífellt að upgötva nýja hluti er hún greinilega farinn að sjá ágætlega. Hún er farinn að geta gripið utan um hluti eins og hárið á mömmu sinni, hálsfesti og í hálsmálið á fötunum okkar þegar við höldum á henni. Hún er farinn að geta staðið í lappirnar með hjálp í nokrar sekúndur. Henni líkar líka vel við sjálfvirku róluna sína og sofnar þar stundum.
Elín María var síðast viktuð föstudaginn 16.maí og var hún þá orðin 4.680 grömm. Þann 29.maí fer hún í fyrstu heimsóknina á heilsugæslustöðina og verður meðal annars viktuð og lengdarmæld. Svo núna vill ég að þið giskið á hvað hún verður búinn að lengjast mikið og hvað hún verður þung/létt?
Litla sæta stúlkan í baðiTatiana og Elín María í KópavoginumTatiana & Elín María úti í góðaveðrinu í KópavogiElín María & Ég (Lognið) að hvíla okkur í sófanum heima
Vill byrja á að óska mömmu minni og öllum öðrum mömmum til hamingju með mæðradaginn!
Hef ekki verið duglegur að uppfæra en hérna kemur þó eitthvað.
Þegar Elín María fæddist var hún 3.520 grömm, en 6 daga var hún 3.580grömm, 17 daga var hún 4.150 grömm og loks 24 daga var hún orðin 4.420 grömm. Sem sagt þá er stúlkan mín litla búinn að þyngjast um 900 grömm frá fæðingarþyngd sem er bara hið besta mál. Hélt reyndar um daginn að ég gæti nú auðveldlega bara haldið á Elínu Maríu í fanginu og viktað okkur saman á hverjum degi til að sjá hvað hún er dugleg að stækka, vegna þess að ég er alltaf 99.990 grömm. Vegna þess hélt ég um tíma að stúlkan hefði þyngst töluvert meira, en við nánari eftirgrennslan var um tæknileg mistök að ræða.
Fjölskyldan úti að labbaTatiana & Elín María að labba skammt frá heimilinu okkar sem er í baksýn.Elín María horfir yfir öxlina á ömmu sinni.
Það er ekki víst að maður sé búinn að fatta þetta almennilega, en það er mjög margt sem að verður öðruvísi við að verða pabbi. Skrapp til Óla og Angelicu í gærkvöldi en þau voru með smá partý. Konan komst auðvitað ekki þótt þetta væri í næsta húsi og ég stoppaði bara stutt. Það verður sem sagt ekkert auðvelt að komast á mannamót á kvöldin þar sem allt mun snúast um prinsessuna. En í gærkvöldi, í veislunni/partýinu þá vorum við nokkrir að spjalla um bíómyndir og svo bíóferðir og varð einum að orði að hann færi núna ekki nema c.a. tvisvar á ári í bíó og þá alltaf á barnamyndir, aldrei á stórmyndir sem honum langar að sjá sjálfum og þá sagði annar faðir, „ég get ekki svarað nema bræða úr heilanum“ en hann mundi ekkert eftir síðustu bíóferð en sagði að hún hefði örugglega verið áður en hann varð faðir fyrir rúmum 2 árum.
Svo á maður auðvitað eftir að sjá fullt af öðrum hlutum sem eru öðruvísi.
En það er reyndar búið að vera svaka gaman og ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. En mér skylst að konan þurfi að hvíla sig sérstaklega vel þessa daganna því líðan hennar hafi mikil áhrif á barnið. Þess vegna höfum við reynt að hafa það bara rólegt og höfum beðið marga sem hafa viljað koma og sjá dúlluna að bíða. Reyndar komu Óli, Jolanta, Viktoría Ása & Frank í heimsókn á fimmtudagskvöldið. Gat ekki séð betur en að Viktoría Ása hafi verið soldið hrifinn af littlu frænku sinni.
En nóg í bili. Bara nokkrar myndir og svo smá getraun fyrir ykkur undir myndum dagsins!!!!!!!!
ENDILEGA SVARA!!!!!
Fyrsta myndin af fjölskyldunni!!! f.v. Tatiana, Elín María & Bjarki (Lognið)Elín María og ég (proud father)Lítið barn, lítið vandamál!Tatiana (the queen) & Elín María (the princess)
Við eignuðumst í morgun kl. 06:08 yndislega stúlku og var hún við fæðingu 50cm löng og 3.520 grömm eða 14 merkur. Við höfum ákveðið að nefna prinsessuna okkar Elín María eftir ömmu hennar og langömmum. Tengdamamma mín í Moldavíu heitir María og móðir hans pabba míns hét María. Móðir hennar mömmu minnar hét Elínborg Ása og er Elín stytting á hennar nafni svo ættingjar Tatiönu eigi betra með að bera það fram.
Elín María og Tatiana (ástirnar mínar!!!)Ég og Elín María (eða kannski Logn & Blíða og sólin skýn inn um gluggan)Elín María kominn heim!!!
Þá er ég í Luxemborg hjá Rúnar, Þóru, Daða, Ara og Ottó.
Ég setti upp hérna smá blogg-dótari sem ég er að prufa, en það ætti að gera mér kleift að setja inn efni þegar ég er erlendis og fer á netkaffihús. Það er að segja ef þetta á annað borð virkar. Er hætt að virka (2022)