Flensa

Komum í land í gær en ég var voðalega slappur og gerði nánast ekki neitt.  Búinn að vera með flensuskít síðustu daga og var síðasti túr mjög svo erfiður fyrir mig.  Það er þó kannski smá kaldhæðni í örlögunum því nákvæmlega fyrir 10 árum var ég fárveikur um borð í Fanney SH-24, á línuveiðum með beitingarvél.  Þá var matarlystin eitthvað ekki góð og gat ég ekki klárað hádegismatinn og hafði matsveinninn (Haraldur R. Magnússon), orð á því hvort ekki væri allt í lagi.  Eftir svo smá vinnu út á dekki fór ég að fá verk í magann, var sljór, svitnaði mikið en var að deyja úr kulda.  Þá var mér hent í koju, og hafður undir eftirliti uns við komum í land en þá var ég sendur á sjúkrahúsið á Akranesi.  Núna var ég hins vegar listarlaus og slappur mest allan túrinn og stundum svitnaði ég mikið og stundum var mér ægilega kalt.  Reyndar held ég að ég hafi slegið öll svitamet á sunnudagsmorguninn og er hætt við að allur vetrarforðinn sem ég var búinn að safna utan á mig í Moldavíu sé horfinn.  Vegna þess hvernig örlögin hafa verið er best að vera ekki að storka þeim og því best að panta mér frí 12-17.janúar 2015.  Vitanlega var ekki um sömu sjúkdómana að ræða því 1995 var það botnlanginn en 2005 flensa.

Svo er ég að vinna í að setja inn ferðasöguna og fara hlutar úr henni að koma inn fljótlega.

Heim frá FarFarAway

Kom heim til Grundarfjarðar kl. 01:40 í morgun og var þá afskaplega þreyttur.  Stoppaði aðeins hjá mömmu í Reykjavík og hitti þar fyrir bræður mína Óla Björn og Frank, og bauð mamma okkur upp á fisk sem var ofboðslega vel þeginn eftir heimkomuna.   Svo mun ég víst fara á sjóinn í dag kl. 17:00 og því er enginn tími núna til að setja inn myndir eða ferðasöguna.  Er reyndar búinn að skrifa megnið af ferðasögunni í fartölvunni meðan ég var úti og ætla ég að setja a.m.k. hálfa söguna hérna næst þegar ég verð í landi.  Vill reyndar segja að þetta var ofboðslega skemmtileg ferð og gaman að sjá hvað allt er öðuvísi þarna í FarFarAway „Moldova“.  Vona bara að það verði gott fiskirí og ég verði kominn heim á mánudagsmorguninn.

Ég vill byrja á að óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs

(nema þeim sem stal fisknum)

En annar er ég núna staddur í Budapest í Ungverjalandi og sit bara á flugvellinum að nördast á netinu og smakka ungverskan bjór.  Á sama tíma eru vinnufélagar mínir að taka beituna um borð og munu líklegast leggja í hann fljótlega.  Ég þarf hins vegar að sitja hérna örlítið lengur og svo síðar mun ég fljúga með Saab 340 flugvél til Chisinau í Moldavíu, öðru nafni „Farfaraway“.  Í morgun kom ég með Canadair Jet 200 flugvél sem er framleidd af sama fyrirtækinu og gerir Ski-doo (vélsleða), Sea-doo (sjóketti), Evenrude & Johnson (utanborðsmótora).  Þetta var 48 manna þota og var flughraðinn eitthvað á milli 850km/klst til 960km/klst.  Saab vélin sem ég mun fljúga með á eftir er hins vegar ekki nema 33 manna vél en maður hlítur að vera öruggur í Saab?.

Annars er ég reyndar langt á eftir upphaflegri áætlun því ég ætlaði að fljuga út 28.12 og koma til „farfaraway“ 29.12.  En svona er þetta bara stundum. Í gær eyddi ég hins vegar deginum í kóngsins Kaupmannahöfn.  Hafið þið hugsað út í þetta „kóngsins Kaupmannahöfn“?  Og þeir eiga ekki einu sinni kóng!  Bara Drottningarmann, drottningu og erfingja.

En agaleg snilld er þetta þráðlausa internet og allir þessir heitu reitir í heiminum sem hægt er að tengjast við.Átti nú reyndar ekkert sérstaklega von á að slíkt væri til staðar í Budapest, en er hins vegar nokkuð viss um að slíkt er ekki til staðar í „Farfaraway“ enda held ég að það sé líka farfaraway í tækni og tíma.  Mikið agalega er maður þó að verða þreyttur og svangur á að sitja bara á rassgatinu og nördast í tölvunni.  Svo bara spyr ég, hverjir vilja fá póstkort?

En svo ef ég kemst ekki í tengingu til að uppfæra síðuna mína þá skal ég reyna að skrifa eitthvað í „segðu þitt álit“

kv. frá Budapest 

Landvistarleyfi í FarFarAway

Er víst búinn að fá staðfestingu á landvistarleyfi í „Far far away“

Fékk senda smá vísu í jólakorti.

Kenndur Stormi kauði jú
kokkar út á sjónum
Logninu ég lýsi nú
Ljúfum víst og góðum

Margt getur, mikið og kann
mörgum kostum búinn
Vafrar líka vefinn um hann
Viti menn, þar var þá frúin

Mögulegt landvistarleyfi í FarFarAway

Var nú í sambandi við „far far away“ og fékk þau svör að ég fengi upplýsingar um landvistarleyfið í fyrramálið.  Hvernig í ósköpunum á Íslendingur að geta beðið eftir eitthverju þar til daginn eftir, hvað þá í marga daga.  Það er nú ekki eins og maður sé eitthvað þolinnmóður.  Svo er nú eftir að gera helling fyrir jólinn, en fegnastur er ég þó að vera ekki heima um jólin og verður því ekkert jólaskraut fyrir utan litla sæta jólatrésins okkar Franks.

Svo finnst mér alltaf gaman að skoða hvernig heimsóknarvenjur fólks á vefinn minn eru, en Tommi virðist alltaf kíkja í heimsókn á virkum dögum milli kl. 10:30-12:15 úr vinnuni, Eyrún virðist einnig alltaf kíkja í vinnunni en tímasetningin getur verið allur dagurinn. Svo eftir að Jónas skipstjóri endurnýjaði tölvuna sína og fékk sér vdsl.is tenginu þá virðist ég ekki getað fylgst með honum lengur. Var reyndar ofur einfalt áður þar sem hann var með Windows ME og IE 5.5 vafra og ISDN aðgang hjá símanum. Svo kíkir víst Hilmar hennar Steinunnar hérna stundum en það gætu líklegast verið aðeins tvær manneskjur í Danmörku að skoða síðuna mína reglulega. Svo hún Louise kíkir stundum frá  tengingunni xxxxxx.umea.se og svo Emilia með eitthvað .ca  Svo eru stundum eitthverjar dularfullar heimsóknir frá tölvum sem ég næ engan veginn að skilja hver er að nota. T.d. er ég búinn að fá a.m.k. tvær heimsóknir frá xxx.althingi.is s.l. viku og einnig fengið nokkrar heimsóknir frá Norræna fjárfestingarbankanum xxx.nib.int.  Það er samt alltaf gaman að vita að eitthverjir merkilegir menn séu að skoða síðuna mína og það reglulega.  Hvað skyldu þeir á alþingi vera að lesa? Ætli verði sett lög sem banna mér að nota internetið? Eða verður mér boðið sæti á framboðslista fyrir næstu kostningar? Skyldi Norrænni fjárfestingarbankinn vilja fjárfesta í lognid.is? Skyldu þeir vilja lána mér peninga til að kaupa „Far far away“?  Þetta vekur upp margar spurningar hjá mér og væri auðvitað gaman að þetta fólk skrifaði í gestabókina mína, þó ekki væri nema bara nafn og hvernig þeir fundu síðuna mína.

Jólafrí

Þá er maður víst kominn í jólafrí!!!  Og svo fæ ég líklegast fréttir í dag um hvort ég fái landvistarleyfi í „Far far away“ en maður vonar bara það besta.

Svo verður maður nú að segja ljóta sögu af eitthverjum vinnufélaga mínum, en eitthver gerðist svo óheiðarlegur að stela frá mér fisk sem ég var búinn að hafa fyrir að flaka fyrir mína nánustu og er nú spurning hvort að ég kæri ekki verknaðinn til lögreglunar (Óla Storms anda átti hann að fá hluta af fisknum) eða ………?????   Er reyndar með ágæti hugmynd að refsingu, en hún er á þann veg að þegar ég mæti til vinnu á næsta ári verður hafður fiskur í hvert mál þangað til eitthver eða eitthverir taka sig til og flaka fyrir mig a.m.k. sama magn og var stolið af mér.  Þannig að þá verður bara öllum refsað fyrir verknaðinn og verði þeim að góðu.